| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12


Um heimild

Höfundur kenndi Ragnari.


Tildrög

Um læknisaðferðir NLFÍ  á hælinu í Hveragerði.
Ávallt bullar eldsins glóð
undir fullu svaði.
Lét mig sulla laghent fljóð
í leir og drullubaði.

Báðar axlir, bak og lær
bæði strauk og kreisti.
Mjúkum höndum mærin kær
mína heilsu treysti.