| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12


Tildrög

Þorsteinn Pálsson, þá framkvæmdastjóri samtaka vinnuveitenda, bauð sig fram í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Einhver smávægileg andstaða var gegn honum en síðan bætti hann við fylgi sitt. Þá orti Jón og hafði í huga að horn fara að vaxa á gemlingum þegar í þá kemur sæld af góðri fóðrun.  
Þarna góð við gerðum kaup
gagnar lítt að kvarta.
Það eru komin hornahlaup
á hrútinn okkar svarta.