Í rökkrinu | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Í rökkrinu

Fyrsta ljóðlína:Ég í rökkrinu kvæðin mín kvað,
Viðm.ártal:≈ 1960–2000
Tímasetning:1980
Ég í rökkrinu kvæðin mín kvað,
öll mín kvæði um vorið og þig.
Já, og vina mín, þökk fyrir það
sem þú hefur gert fyrir mig

Man ég enn hve sú gata var greið
þar sem gengum við saman eitt vor.
Upp með fljótinu lá okkar leið,
þar í leynum mun geymast hvert spor.

Og ég man hvernig síðförul sól
rann um síðir í fjallgarðsins tá.
Hverja von sem að æska mín ól,
hef ég andvaka kvatt síðan þá.

Skammt frá læknum við kvöddumst í kvos
og þú kvaðst ganga burtu þinn veg.
Handan fjallsins þín fegurstu bros
hafa fölskvast -og hérna stend ég.