Bróðurminning | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Bróðurminning

Fyrsta ljóðlína:Hvítá rennur frá örófi alda
Viðm.ártal:≈ 2000
Hvítá renuur frá örófi alda
um Oddgeirshólana land.
Byltist niður hjá bröttum fjöllum
og ber með sér leir og sand.

Stundum ljúf eins og óskir allra
og ævintýranna beið.
Heilsar með gleði fuglum og fiskum
sem fara þá vatnaleið.

Stundum reið og ryður burt klaka
og ristir í bakkana spor.
Sáir þar blóma og birkifræum
sem brotna svo næsta vor.

Við Skotabergstána er sterkur straumur
og stefnir í vesturátt.
Fellur niður hjá Hrútahólmum
og hamast þar dag og nátt.

Víkur til hliðar hjá Veiðinefi
verður þar röstin há.
Gimbrarhólmi og Markeyjan mikla
mynda þar ála þrjá.

Vatnið sem rennur í fossaföllum
og fýkur um klett og grund
ber þér kveðju frá okkur öllum
sem áttum það skamma stund.


Áfram er haldið, til Ægis er leitað
aldrei er stundar töf.
Rennur og niðar um ár og aldir
örskammt frá þinni gröf.


Athugagreinar

Ólafur bróðir Guðmundar, fluttist að Selfossi á efri árum og var jarðsettur í kirkjugarði Selfoss á bökkum Ölfusár.
Þeir bræður bjuggu lengi félagsbúi í Oddgeirshóli ásamt Jóhanni, bróður þeirra.