Vangaveltur | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Vangaveltur

Fyrsta ljóðlína: Mörg er landsins fegurð föl
Viðm.ártal:≈ 2000

Mörg er landsins fegurð föl
fjárvon toppa lokkar
Þeir eru að verða þjóðarböl
þessir stjórnarflokkar.
 
Álver þykir óskahnoss,
sem allar byggðir styrki.
Duga myndi  Dettifoss
í dágott orkuvirki.
 
Ekki þarf að efa það
álver kvöð  fram beri.
Mætti gera Gullfoss  að
góðu orkuveri
 
Færi einhver stór á stjá
með stóriðjuna nýja.
Úr Geysi mætti gufu  fá
gufuhverfla að knýja.
 
Margt  er það sem getur  gerst,
græðgin  fái að stjórna.
En þó telst það allra  verst
ásýnd  lands að fórna.