Vorljóð | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Vorljóð

Fyrsta ljóðlína:Ennþá fær mér lífið léð
Viðm.ártal:
Ennþá fær mér lífið léð
ljós frá nýju vori.
Gaman er að geta séð
gróður í hverju spori.

Geislalindin, ljúfust sól
lífsins hrindir trega
skín á tinda, byggð og ból
brosir yndislega.

Vonir bjóða vorsins mátt
vaknar gróðurnálin.
Enginn ljóðin leiki grátt
lifi þjóðarsálin.