Evukvæði | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Evukvæði

Fyrsta ljóðlína:Í upphafi Drottinn Evu skóp
Höfundur:Ásgeir Jónsson
Viðm.ártal:
Í upphafi Drottinn Evu skóp
með ástina logandi í hjarta.
Allsnakin hún um Eden hljóp
svo Adam þurfti ekki að kvarta.

Aldrei borgaði Adam skatt
og enginn hann níddi oní svaðið.
Hún Eva ei krafði hann um kjól eða hatt
hún komst af með fíkjublaðið.

Sjaldan var Eva við Adam sinn gröm
Eva var húsleg og þrifin.
Ei var hún heldur afbrýðisöm.
Til öryggis taldi hún þó rifin.