Bændaljóð | Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (113)

Bændaljóð

Fyrsta ljóðlína:Upp til fjalla, inn til dala,
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1958

Skýringar

Ort í tilefni af 50 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands, árið 1958.
Upp til fjalla, inn til dala,
út við hafið blátt.
Hvar sem lítil lækjarsitra
lék við steina, hraunið grátt.
Hvar sem lítil laut og bali
lágum gróðri veitti skjól.
Reistu bændur býlin smáu
barin stormum vermd af sól.

Nú er horfinn burstabærinn
breytt er líf hjá þjóð.
Vélaaflið, margra maki,
Menning, tækni, hugsjón góð
ruddu vegin. Vaskir drengir
vörður reistu, bættu úr þurrð.
Breyttu karga í blómsturgrundir
byggðu höll úr grárri urð.

Enn er ótal verk að vinna
vandi og gæsla nóg.
Meðan Íslands ættir dafna
inn til dala út við sjó.
Vaxi byggð og blómgist sveitir,
búi hver við nógan arð.
Nýtist hver ein seyla og sandur,
sortukelda móabarð.


Horfi fram og hækki flugið
hver ein íslensk sál.
Dægurþrassins dökku skýjum
Dreifið, göfgið verk og mál
bændur íslands öldnu stofnar
ungu hlynir, traustu menn.
Viljans þrek og valin hjörtu
vaka í ykkar brjóstum enn.


Athugagreinar